Borði
- Hefðbundið verð
-
3.000 kr - Hefðbundið verð
-
- Tilboðs verð
-
3.000 kr
Gat ekki fundið út hvort hægt sé að sækja

Tvískiptur borði með áletrun fylgir með öllum útfararskreytingum en hægt er að kaupa hann aukalega ef óskað er eftir að fá hann á blómvönd eða pottaskreytingu.
Hefðbundinn borði er hvítur, með svörtum stöfum og gylltri rönd meðfram langhliðunum. Hægt er að fá öðruvísi borða eftir ósk.
Venjan er að nafn hins látna sé sett öðru megin og kveðja hinum megin.
Hér eru nokkrar hugmyndir af kveðjum - og svo má bæta fyrir aftan frá hverjum kveðjan sé:
Ástar- og saknaðarkveðjur
Ástarkveðja
Blessuð sé minning þín
Guð blessi minningu þína
Guð blessi þig og varðveiti
Guð gefi þér ljós og frið
Guð geymi þig
Guð veri með þér
Hafðu þökk fyrir allt og allt
Hinsta kveðja
Hinsta kveðja og hjartans þökk
Hinstu kveðjur
Hver minning er dýrmæt perla
Hvíl í friði
Hvíl í Guðs friði
Með virðingu og þakklæti
Kveðja
Kær kveðja
Kærar kveðjur
Lifðu í ljósinu
Ljúf minning lifir
Margs er að minnast, margs er að sakna
Með ástkærri þökk
Með hlýhug og þakklæti
Með kveðju og hjartans þökk
Með kveðju og þakklæti
Með kærri kveðju
Með þökk og virðingu
Minning þín er ljós í lífi okkar
Minning þín lifir
Sofðu rótt
Takk fyrir allt elsku ……………
Við elskum þig
Vinarkveðja
Þín minning lifir
Þökkum þín ljúfu kynni