Blómabúðin Reykjavíkurblóm

Velkomin í Reykjavíkurblóm í Borgartúni! Hjá okkur finnur þú fersk blóm, fallega blómvendi, pottaplöntur og gjafavöru – og við aðstoðum þig glöð við að finna réttu blómin fyrir hvert tilefni.

Verslun Reykjavíkurblóma í Borgartúni 23, 105 Reykjavík

Heimsæktu okkur

Borgartún 23, 105 Reykjavík
Sími: 561-1300
Netfang: blom@blom.is

Opnunartími

Mán–fös: 10–18
Lau–sun: 11–17

Hvað finnur þú í búðinni?

  • Fersk blóm – innlend og erlend afskorin blóm, alltaf fersk.
  • Blómvendir – tilbúnir eða gerðir eftir þínum óskum.
  • Pottaplöntur – gott úrval af grænu ásamt pottum, áburði og fleiru.
  • Gjafavara – kerti, kertastjakar, servíettur og fleira fallegt.
  • Tækifæriskort – fyrir afmæli, brúðkaup, samúð og öll önnur tilefni.
Blómabúðin að innan: blómvendir, blómakælar og hillur með gjafavöru

Fallega innpakkað

Við pökkum gjöfunum fallega inn. Innpökkun er frí á því sem keypt er hjá okkur, og þú ert líka velkomin(n) með gjafir keyptar annars staðar sem við pökkum inn gegn vægu gjaldi (þó ekki blóm keypt annars staðar).

Blómasendingar alla daga

Við sendum blóm og gjafir alla daga vikunnar á höfuðborgarsvæðinu og oft er hægt að senda samdægurs. Skoðaðu blómvendina okkar og pantaðu á netinu.

Blómvendir tilbúnir á afgreiðsluborðinu
Rauðar rósir og litríkir blómvendir

Fyrir fyrirtæki

Við þjónustum einnig fyrirtæki með blóm fyrir skrifstofur, móttökur og viðburði. Kynntu þér fyrirtækjaþjónustuna.