Sendingarskilmálar

Áfangastaðir

Við bjóðum upp á blómasendingar hvort sem er á heimili, vinnustaði, veitingastaði eða annað.

Hér eru þeir staðir sem við getum nokkuð örugglega afhent til.

Höfuðborgarsvæðið:

Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Álftanes, Mosfellsbær, Kjalarnes.

Suðurnes:

Reykjanesbær, Vogar, Grindavík, Sandgerði, Garður.

Suðurland (þéttbýli):

Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri, Hella, Hvolsvöllur.


Sendingarkostnaður

Póstnúmer viðtakanda ákvarðar sendingarkostnað. Vertu því viss um að skrá rétt póstnúmer í pantanaferlinu til að fá rétt verð í sendinguna. Ef þú ert ekki viss um hvað póstnúmerið er þá er mögulega hægt að finna það með leit að nafni, síma eða heimilisfangi á ja.is. Ef það gengur ekki þá getum við yfirleitt fundið út póstnúmer útfrá heimilisfangi.

Svæði 1: 101, 102, 103, 104, 105, 107, 108, 170: 2500 kr.

Svæði 2: 109, 110, 111, 200, 201: 2700 kr.

Svæði 3: 112, 113, 203, 210, 161: 2900 kr.

Svæði 4: 220, 221, 225, 270, 271: 3100 kr.

Svæði 5: 116, 190, 230, 232, 233, 235, 240, 245, 250, 260, 262, 800, 801, 803, 810, 815, 816, 820, 825: 6100 kr

Athugið að viðbótargjald getur bæsts við ef pantað er mikið magn af blómum/skreytingum.

Ef hætta þarf við pöntun fæst sendingarkostnaður ekki endurgreiddur ef búið er að reyna að afhenda pöntunina á skráðu aðsetri á þeim tíma sem óskað var eftir.

Ef fara þarf á annan stað en þann sem var gefinn upp upphaflega vegna sendingar áskiljum við okkur rétt til að innheimta viðbótar sendingargjald vegna þess.

 

Sendingartímar

Við bjóðum upp á blómasendingar alla daga vikunnar.

Sendingar á Höfuðborgarsvæðinu:

- Skiptast í þrjú tímabil en þau eru frá 10:00-13:00, frá 13:00-16:00 og frá 17:00-20:00 vitka daga / 16:00-19:00 um helgar.

Við gerum okkar besta til að senda á þeim tíma sem er valinn. Ef að viðtakandi er annar en sendandi og valinn tími hentar honum ekki þá finnum við að sjálfsögðu annan tíma. Að sama skapi, ef að þessi tímabil henta ekki eða nákvæmari tímasetningu er óskað, vinsamlegast hafið samband og við reynum að verða við óskinni.

Sendingar á Suðurnes og Suðurland (þéttbýli) geta almennt farið tvisvar á dag virka daga.

Þegar sendingartími er valinn vinsamlegast veljið tíma sem líklegt er að viðtakandi sé við á. Gott er að sendandi athugi hvort viðtakandi sé við á umbeðnum tíma eða biðji starfsfólk Reykjavíkurblóma um að hringja í viðtakanda og athuga það áður en sending er send. Alla jafna hringjum við ekki á undan svo að sendingin nái frekar að koma á óvart, en við áskiljum okkur þó rétt til þess í einstaka tilfellum.

Ef viðtakandi er ekki við þegar sendill kemur með sendingu þá eru nokkrir möguleikar til staðar:

- Ef einhver annar er heima þá leyfum við þeim yfirleitt að taka við fyrir hönd viðtakenda.

- Ef enginn er heima þá hringjum við í símann hjá tengilið. Ef hann svarar ekki hringjum við yfirleitt í síma hjá viðtakenda eða sendanda eftir því hvað á við hverju sinni.
- Ef ekki er mjög langt í að einhver komi heim og veður er ágætt þá semjum við oft um að skilja eftir fyrir utan eða í skjóli ef hægt er. Ef það gengur ekki þá semjum við mögulega um að skilja eftir hjá nágranna.
- Ef viðkomandi er á ferðinni í nágrenni við blómabúðina þá getur viðkomandi mögulega sótt þangað eftir að sendill kemur til baka með sendinguna.
- Ef ekkert af þessu gengur athugum við með að koma aftur á öðrum tíma eða fara með á annan stað í samráði við viðtakenda eða sendanda, en því getur fylgt auka sendingarkostnaður fyrir þann sem pantar.


Fyrirvari pantana

Sendingar er hægt að panta minnst 30 mínútum fyrir uppgefin sendingartímabil.

Hægt er að velja að sækja minnst klukkustund fyrir uppgefinn afhendingartíma virka daga en minnst 2 klukkustundum fyrir afhendingartíma um helgar.

Útfararskreytingar og blómaskreytingar: Panta þarf með tveggja daga fyrirvara, 48 klst fyrir afhendingu.

Ef pöntun á að sendast út fyrir Suðvesturhornið óskum við eftir auka tíma, allt að 3 dögum eftir áfangastað.


Lágmarks upphæð pantana

Lágmarks upphæð pöntunar á Höfuðborgarsvæðinu: 1950 kr.

Lágmarks upphæð pöntunar annað: 5000 kr.