Spurt og svarað
Sendið þið blóm?
Já, við bjóðum upp á blómasendingar hvort sem er á heimili, vinnustaði, veitingastaði eða annað.
Hvernig panta ég?
Þú finnur það sem þig langar að panta og velur að ,,Bæta í körfu''. Þá áttu að flytjast sjálkrafa yfir í körfuna þína. Ef ekki, þá geturðu smellt á körfu táknið uppi í hægra horninu til að flytjast þangað. Ef þú vilt bæta einhverju við pöntunina geturðu farið fram og til baka á vefsíðunni og bætt við því sem þú vilt.
Þegar þú ert búin/n að velja vörurnar velur þú tímasetningu afhendingar og skrifar inn texta fyrir kort/borða ef þú vilt láta slíkt fylgja og smellir á ,,Halda áfram''.
Þá ertu flutt/ur sjálfkrafa yfir á síðu þar sem þú fyllir út helstu upplýsingar: Tölvupóstfangið þitt, afhendingarmáti og upplýsingar viðtakanda, greiðsluaðferð og upplýsingar greiðanda ef hann er annar en viðtakandi.
Þegar þessu er lokið smellir þú á ,,Greiða núna/Klára pöntun'' og verður þú þá flutt/ur yfir á greiðslusíðuna til að klára greiðslu.
Getið þið sent hvert sem er?
Hér eru þeir staðir sem við getum nokkuð örugglega afhent til.
Höfuðborgarsvæðið:
Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Álftanes, Mosfellsbær, Kjalarnes.
Suðurnes:
Reykjanesbær, Vogar, Grindavík, Sandgerði, Garður.
Suðurland (þéttbýli):
Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri, Hella, Hvolsvöllur.
Hver er sendingarkostnaðurinn?
Sendingarkostnaður fer eftir póstnúmerum og er eftirfarandi:
Svæði 1: 101, 102, 103, 104, 105, 107, 108, 170: 2300 kr.
Svæði 2: 109, 110, 111, 200, 201: 2500 kr.
Svæði 3: 112, 113, 203, 210, 161: 2700 kr.
Svæði 4: 220, 221, 225, 270, 271: 2900 kr.
Svæði 5: 116, 190, 230, 232, 233, 235, 240, 245, 250, 260, 262, 800, 801, 803, 810, 815, 816, 820, 825: 5500 kr.
Svæði 6: Önnur póstnúmer á landsbyggðinni: 7000 kr.
Hvenær sendið þið?
Við bjóðum upp á blómasendingar alla daga vikunnar, flesta daga ársins.
Við áskiljum okkur rétt til að hafa samband við viðtakenda til að staðfesta stað og stund. Ef óskað er eftir að sendingin komi á óvart og að við þ.a.l. höfum ekki samband við móttakenda þá verður sendandi að vera búinn að tryggja að einhver verði á staðnum til að taka á móti sendingunni eða að gefa leyfi fyrir að sendingin verði skilin eftir.
Sendingar á Höfuðborgarsvæðinu skiptast í þrjú tímabil á virkum dögum en þau eru frá 10:00-13:00, frá 13:00-16:00 (13:00-15:00 á föstudögum) og frá 17:00-20:00. Á laugardögum og sunnudögum er sent frá 10:00-13:00, 13:00-16:00 og frá 16:00-19:00. Þessir tímar eru viðmið og gerum við okkar besta til að senda á þeim tíma sem er valinn. Ef að viðtakandi er annar en sendandi og valinn tími hentar honum ekki þá finnum við að sjálfsögðu annan tíma. Að sama skapi, ef að þessi tímabil henta ekki eða nákvæmari tímasetningu er óskað, vinsamlegast hafið samband og við reynum að verða við óskinni.
Sendingar á Suðurnes og Suðurland (þéttbýli) geta almennt farið tvisvar á dag virka daga.
Hvernig virkar að senda blóm í útför í kirkju?
Pantanaferlið er það sama og fyrir aðrar blómasendingar.
Þú velur þau blóm/skreytingar sem þú vilt senda og setur í körfuna þína.
Í körfunni velur þú þann dag sem útförin á sér stað og það tímabil sem passar best m.v. að blómin verði komin um 2 tímum áður en útförin hefst.
Í upplýsingar viðtakanda setur þú nafn hins látna í ,,fornafn og eftirnafn''. Í ,,aðsetur'' setur þú nafn kirkjunnar og passar svo að setja rétt póstnúmer kirkjunnar svo að sendingarkostnaður reiknist rétt.
Standar fyrir útfararskreytingar eru yfirleitt til staðar í kirkjum og sér starfsfólk útfararstofanna / kirkjuverðir um að stilla upp skreytingunum.
Er hægt að senda blóm á Landspítalann?
Reglurnar varðandi þetta eru orðnar strangari og er nú að fullu orðið óheimilt að koma með blóm á Landspítalann Fossvogi.
Mögulega má enn koma með blóm á einhverjar deildir Landspítalans á Hringbraut.
Ef þú ert í vafa þá væri gott ef þú myndir hafa samband við viðkomand deild og athuga hverjar reglurnar eru.
Hafið þið samband við viðtakanda eða get ég látið sendinguna koma á óvart?
Við áskiljum okkur rétt til að hafa samband við viðtakenda til að staðfesta stað og stund. Ef óskað er eftir að sendingin komi á óvart og að við þ.a.l. höfum ekki samband við viðtakenda þá verður sendandi að vera búinn að tryggja að einhver verði á staðnum til að taka á móti sendingunni eða að gefa leyfi fyrir að sendingin verði skilin eftir.
Hvað þarf ég að panta með miklum fyrirvara?
Sendingar er hægt að panta minnst 30 mínútum fyrir uppgefin sendingartímabil.
Hægt er að velja að sækja minnst klukkustund fyrir uppgefinn afhendingartíma virka daga en minnst 2 klukkustundum fyrir afhendingartíma um helgar.
Fyrir útfararskreytingar og blómaskreytingar í potti þarf að panta með tveggja daga fyrirvara, 48 klst fyrir afhendingu.
Við óskum eftir að brúðarvendir séu pantaðir með minnst 5 daga fyrirvara til að tryggja bestu mögulegu gæði.
Ef pöntun á að sendast út fyrir Höfuðborgarsvæðið óskum við eftir auka tíma, allt að 3 dögum eftir áfangastað.
Er lágmarks upphæð sem ég þarf að panta fyrir?
Ef þú vilt láta okkur senda pöntunina innan Höfuðborgarsvæðisins þá gerum við kröfu um að pantað sé fyrir að lágmarki 1950 kr.
Ef þú vilt senda utan Höfuðborgarsvæðisins þá er lágmarks upphæð 4500 kr.
Hvernig greiði ég í vefversluninni?
Fyrir greiðslur í vefverslun eru fjórir möguleikar:
1. Greiðsla með debit eða kreditkorti. Við tökum við greiðslukortum frá VISA og Mastercard. Til að nota þennan kost veljið ,,Teya''
2. Millifærsla á bankareikning. Ef millifærsla er valin vinsamlegast greiðið samkvæmt eftirfarandi upplýsingum og sendið staðfestingu / tilkynningu á greiðslu á netfangið blom@blom.is
Kennitala: 630216-1090
Banki: 0133-26-011492
Fyrir greiðslur af erlendum bankareikningum:
SWIFT (BIC): NBIIISRE
IBAN: IS58 0133 2601 1492 6302 1610 90
3. Greiðsla með Aur.
4. Greiðsla með Paypal. PayPal tekur ekki við íslenskum krónum svo það er einungis í boði í erlendum gjaldmiðlum. Ef PayPal er valið sendum við greiðslubeiðni í Bandaríkjadollurum á netfangið á bakvið pöntunina.
Get ég greitt með símgreiðslu?
Sem stendur á það að vera hægt en einungis með kreditkorti.
Er hægt að senda á marga viðtakendur í einni pöntun?
Ef að allir viðtakendur eru á sama heimilisfangi þá já. Það er hægt að setja eins marga vendi / blóm í körfuna og þarf og ef óskað er eftir korti á hvern vönd er hægt að skrifa alla textana í kortareitinn á körfusvæðinu og taka fram hvaða kort á að fara á hvern vönd.
Ef að viðtakendur eru á sitthvoru heimilisfanginu þarf að gera sér pöntun fyrir hvern viðtakanda.
Hvernig er opnunartími almennt og á hátíðisdögum?
Almennur opnunartími er 10-18 virka daga og 11-17 um helgar.
Varðandi hátíðisdaga getur það verið breytilegt en ef breyting er á hefðbundnum opnunartíma er það yfirleitt birt í tilkynningarborðanum efst á síðunni. Engu að síður er hér almennt hvað má búast við á hátíðisdögum:
Lokað: Jóladag, annan í jólum, nýársdag, föstudaginn langa, sunnudag í verslunarmannahelginni og frídag verslunarmanna.
Opið 10-20: Þorláksmessa.
Opið 9-15: Aðfangadagur og gamlársdagur.
Opið 9-19: Valentínusardagur, Konudagur og Mæðradagur.
Opið 11-17: Flestir aðrir hátíðisdagar.
Af hverju eru svona margir vendir/blóm uppseldir?
Við notum sérstakt birgðakerfi til að halda utan um hvaða blóm við eigum til hverju sinni. Ef að eitthvað ákveðið blóm er uppselt í kerfinu verða allir vendir sem innihalda það blóm sjálfkrafa uppseldir. Við höfum þetta svona til að reyna að tryggja að lokaútkoman verði sem líkust fyrirmyndinni. Það er til svo mikið af fallegum mismunandi blómum í heiminum að við náum ómögulega að eiga allar gerðir til öllum stundum, þess vegna er oft mikið uppselt á síðunni. Við erum þó alltaf að reyna að einfalda og bæta úrvalið um leið svo að hægt sé að kaupa sem flesta vendi hverju sinni. Ef þú vilt bara sjá þá vendi sem eru til er hægt að smella á ''SÍA'' og haka við ''Til á lager'' og þá birtast bara þeir vendir sem við eigum blómin til í.

