Hvað á að gera við blómin?
Varstu að fá blómvönd? Svona endast blómin lengst 💐

Strax og blómin koma
- Settu blómin í vatn sem fyrst. Ef þú átt ekki vasa gæti annað ílát dugað t.d. flaska.
- Stilkarnir ættu að vera tiltölulega nýklipptir en ef þér sýnist svo eða ef blómin passa ekki í ílátið máttu klippa eða skera neðan af þeim, á ská ef þú getur.
- Fjarlægðu öll blöð sem myndu lenda ofan í vatninu.
- Fylltu vasann um 1/3 með vatni, svo stilkarnir séu á kafi en blöðin upp úr.
- Ef blómanæring fylgdi með skaltu hella svolítið af henni í vatnið, fyrir venjulegan blómvönd er 1/2 eða 1/3 af pakka nóg í einn vasa.
Næstu daga
- Skiptu um vatn á nokkurra daga fresti, settu næringu í vatnið ef það á við og klipptu smá neðan af stilkunum.
- Fjarlægðu blöð sem falla í vatnið.
- Hafðu blómin á svölum stað, fjarri hitagjöfum, beinu sólarljósi, dragsúgi og ávöxtum.
- Það getur verið mismunandi hvað afskorin blóm endast lengi, það fer m.a. eftir tegundum og umhirðu en almennt má áætla 1-2 vikur.
Njóttu þeirra
- Gefðu þér stutta stund til að njóta litanna, ilmsins og formanna.
- Þakkaðu þeim sem sendi þér blómin og láttu vita hvað þau glöddu þig.
- Deildu gleðinni! Taktu mynd og merktu okkur @reykjavikurblom 🫶

