Blandaður vöndur
- Hefðbundið verð
-
5,000 kr - Hefðbundið verð
-
- Tilboðs verð
-
5,000 kr
Gat ekki fundið út hvort hægt sé að sækja



Leyfðu blómaskreytunum okkar að velja! Þú velur verðið og segir okkur tilefnið, og við setjum saman ferskan vönd úr því besta sem til er í búðinni þann daginn. Til viðmiðunar: 5.000–6.000 kr. nettur, 6.000–7.000 kr. hóflegur, 7.000–10.000 kr. sæmilegur, 10.000–15.000 kr. almennilegur og 15.000 kr. og yfir viðamikill.
Við sendum alla daga vikunnar á höfuðborgarsvæðinu: virka daga kl. 10–13, 13–16 eða 17–20 og um helgar kl. 16–19. Panta þarf minnst 30 mínútum fyrir tímabilið, en einnig má sækja í búðina í Borgartúni 23.
Almennar upplýsingar um blómvendi
Allir blómvendir eru settir saman með alvöru afskornum blómum.
Mismunandi getur verið hversu mikið blómin hafa opnað sig sem getur valdið því að lokaútkoman líti ekki nákvæmlega eins út og fyrirmyndin.
Við gætum þurft að nota önnur blóm / litatóna en eru á fyrirmyndinni. Við höfum samband ef við þurfum að gera meiriháttar breytingar.
Innpökkun er innifalin og einnig lítið kort / spjald sem við getum skrifað í fyrir þig.
Vasi fylgir ekki með nema annað komi fram. Ef valið er að fá vasa er ekki víst að hann sé eins og á mynd. Almennt notum við hlutlausa glæra glervasa.

